top of page
Hvernig getum við hjálpað?
Flísalagning
Við sérhæfum okkur í flísalögn á gólf og veggi, bæði í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Áhersla er lögð á nákvæmni, beinar línur og snyrtilegan frágang svo útkoman verði bæði falleg og endingargóð.
Flotun
Flotun á gólfum og yfirborðum fyrir heimili og fyrirtæki. Við leggjum áherslu á vandaða flotun sem skilar sléttu og sterku undirlagi, hvort sem það er fyrir flísar eða lokaáferð.


Almenn múrvinna
Við tökum að okkur almenna múrvinnu fyrir heimili, fyrirtæki og húsafélög, hvort sem um er að ræða viðgerðir, lagfæringar eða minni og stærri verkefni. Unnið er af natni og fagmennsku með áherslu á traustan frágang og endingargóða lausn.


Löggiltir Múrarar

Við tökum að okkur öll múrverk
Við höfum margra ára reynslu og tökum að okkur bæði stór og lítil verkefni, þar á meðal flísalögn, flotun, viðgerðir og almennt viðhald fasteigna. Reglulegt og vandað viðhald er mikilvægt til að varðveita verðgildi og gæði fasteigna.
Við leggjum áherslu á rétt efnisval og fagleg vinnubrögð svo viðgerðir falli sem best að, sjáist lítið sem ekkert og endist vel.
Láttu okkur fagmennina um verkið.
Fáðu tilboð
bottom of page

